ESTA heimild er nauðsynleg viðkomandi farþegum til Bandaríkjanna

26.02.2010 14:24

ESTA heimild er nauðsynleg farþegum til Bandaríkjanna frá löndum sem eru undanþegin  vegabréfsáritun.

ESTA
ATHUGIÐ: Farþegar frá löndum undanþegnum vegabréfsáritunum til Bandaríkjanna ('Visa-Waiver Program') geta átt von á því að þeim verði hafnað fari, hafi þeir hvorki ESTA heimild né vegabréfsáritun, skv. tilskipun bandarískra yfirvalda. Brot á þeirri tilskipun varðar sektir og önnur viðurlög.

Ferðamenn frá löndum sem eru undanþegin vegabréfsáritun til Bandaríkjanna ("Visa Waiver Program" - VWP)--verða að sækja um rafræna ferðaheimild á vef bandarískra innflytjendayfirvalda; sjá: Electronic System for Travel Authorization (ESTA)   þar sem sótt er um ESTA.


Öllum viðkomandi farþegum er gert skylt að sækja um þessa heimild á rafrænu formi. Það er stefna bandarískra yfirvalda að ESTA leysi I94W formið af hólmi sem dreift er um borð.


Það er á ábyrgð farþegans að sækja um ESTA skráningu fyrir brottför til Bandaríkjanna.


Æskilegt er að sótt sé um ferðaheimildina á vefnum minnst 72 tímum fyrir brottför. Reynt verður að afgreiða umsóknir sem berast með minni fyrirvara, en ekki verður hægt að tryggja afgreiðslu nema með fyrrgreindum fyrirvara. Flestum umsóknum er svarað um hæl, innan fárra mínútna. Ferðamenn ættu að hafa með sér prentað eintak af ESTA-heimildinni.

ESTA  upplýsingar

Til baka

Bookmark and Share


Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit




 


Inspired by Iceland