Í þeim er að finna nytsamlegar upplýsingar um áfangastaði okkar og góðar ábendingar frá ýmsum einstaklingum um hvað skemmtilegt er að gera í hverri borg.
Flug til Amsterdam með Icelandair ber þig í heillandi heim þar sem frjálslyndi ríkir innan um síki og indæl kaffihús. Verið opin fyrir öllu, takið gönguskóna með og fljúgið til einnar indælustu borgar Evrópu.Mín Amsterdam nýtt
Barcelona er ein af fáum stórborgum þar sem hægt er að fara á sólbaðsströnd inni í miðri borg. Ein ströndin er við Barcelonetahverfið. Þar eru líka fínir veitingastaðir í nágrenninu.Mín BarcelonaMín Barcelona nýtt
Bergen er falleg borg með einstaka staðsetningu, umlukin Fjöllunum sjö og áhrifamiklu landslagi. Sagan og gamlar hefðir setja svip sinn á borgina sem hefur laðað að sér ferðamenn í meira en þúsund ár.Mín BergenMín Bergen nýtt
Berlín er borg mikilla andstæðna. Í byrjun tuttugustu aldar laðaði Berlín til sín leitandi ungt fólk sem heillaðist af menningarlífi borgarinnar. Borgin hefur verið vettvangur frjálslyndis, miðstöð djasstónlistar, lista og skemmtunar.Mín BerlínMín Berlín nýtt
Boston "Einstök og vinsæl" er vægt til orða tekið. Boston er afar mikilvæg í sögu Bandaríkjanna en er samt sem áður "evrópsk í anda", borg sem fólk fellur auðveldlega fyrir.Mín Boston nýtt
Frankfurt, Það er gaman að heimsækja Frankfurt á hvaða tíma árs sem er. Þrátt fyrir að margir kjósi að heimsækja borgina yfir sumarmánuðina er Frankfurt einnig lífleg á veturna og úrvalið af verslunum, veitingastöðum, söfnum og kaffihúsum er endalaust.Mín FrankfurtMín Frankfurt nýtt
Glasgow, Það eru margar ástæður fyrir því að flug til Glasgow borgar sig. Til að byrja með er Glasgow hrein gullnáma fyrir þá sem vilja versla, og hægt að finna góða merkjavöru á hlægilega lágu verði. En það er ekki það eina. Það er hægt að snæða á mörgum frábærum veitingastöðum í borginni, fara í leikhús eða á næstu krá þar sem hægt er að fá skoska stemningu beint í æð.Mín Glasgow
Halifax er kjörinn staður fyrir þá sem vilja hafa það gott, skipta um gír og slaka á. Hérna eru fyrst flokks gististaðir, frábærir veitingastaðir, smitandi fjör á kránum í miðbænum, gott mannlíf, litrík menningarhefð, góðar verslanir og hagstætt verðlag.Mín HalifaxMín Halifax nýtt
Við mælum með að bóka flug til Helsinki og upplifa þetta einstaka land. Landamæri Finnlands liggja að Svíþjóð, Noregi og Rússlandi. Rússnesk áhrif eru áberandi í Helsinki og þótt samskipti þjóðanna tveggja hafi ekki alltaf gengið áfallalaust fyrir sig eru allar væringar gleymdar í dag.Mín HelsinkiMín Helsinki nýtt
Flug til Kaupmannahafnar er þægileg leið til að kynnast Danmörku. Þótt náttúrufegurðin sé mikil er Danmörk ekki þekkt fyrir gnæfandi fjallstinda eða háa fossa. Hæsta "fjall" í Danmörku nær í raun rétt yfir 100 metra.Mín KaupmannahöfnMín Kaupmannahöfn nýtt
London er gríðarstór og yfirþyrmandi, heillandi og uppfull af ævintýrum. Icelandair býður ódýrt flug til London til að veita ykkur innsýn í undraheim borgarinnar.Mín LondonMín London nýtt
Madrid, höfuðborg Spánar, stendur á miðri kastilísku hásléttunni og eru íbúar þar 3 milljónir. Madrid er heimsborg sem hefur upp á margt að bjóða, fegurð, almenningsgarða og söfn, frábæra veitingastaði og næturlíf, mikið úrval verslana og markaða og framúrskarandi golfvelli fyrir golfáhugamanninn.Mín Madrid

Manchester er fyrir norðan London og ef flogið er ódýrt með Icelandair til Manchester er auðvelt að njóta þeirra beggja, þótt Manchester sé alveg nógu stórbiti ein og sér.Mín ManchesterMín Manchester nýtt
Minneapolishefur einfaldlega allt til að bera, og tilboð okkar á ódýru flugi til Minneapolis gerir hana að afar spennandi áfangastað fyrir fjölskyldufríið. Mall of America, stærsta verslunarmiðstöð Bandaríkjanna, er í Minneapolis. Mín MinneapolisMín Minneapolis nýtt
Mílanó er kannski ekki höfuðborg Ítalíu en hún er óopinber tískuhöfuðborg Evrópu. Allt í Mílanó er í tísku, jafnt kaffihús sem gosbrunnar. Mílanó er hröð, skemmtileg og lífleg.Mín MílanóMín Mílanó nýtt
Munchen, Bæjarar eru auðvitað Þjóðverjar. En hlutirnir ganga svolítið öðruvísi fyrir sig í Bæjaralandi en annars staðar í Þýskalandi. Mín MünchenMín München nýtt
New York, borgin sem aldrei sefur, Stóra eplið, NYC. Það má kalla hana hvað sem er, en New York er borg sem maður verður að heimsækja a.m.k. einu sinni á ævinni.Mín New York nýtt
Orlando er líklega þekktust fyrir fjölmarga skemmtigarða, sumir þeirra eru meðal þeirra frægustu í heiminum og efst tróna að sjálfsögðu Disney, Universal Studio-garðarnir og Sea World.Mín OrlandoMín Orlando nýtt
Osló, Þótt auðvelt sé að slaka á í Osló á hvaða tíma árs sem er eru vorin og sumrin þegar allt er í blóma sérstaklega indæl.Mín Osló nýtt

París er ekki öll þar sem hún er séð, svona við fyrstu sýn. Hún er auðvitað fræg fyrir Eiffel-turninn, Sigurbogann og iðandi næturlíf á Champs Elyssées Mín París
Stokkhólmur, höfuðborg Svíþjóðar, er byggð á 14 eyjum og er borg mikilla andstæðna - vatn og jörð, saga og nýjungar, stuttir vetrardagar og hlý sumarkvöld.Mín Stokkhólmur nýtt
Toronto er miðstöð ensk-kanadískrar menningar og fjölmiðlunar en um leið er hún heimaborg ótal þjóðarbrota sem setja sterkan svip á mannlífið og einstök hverfi.Mín TorontoMín Toronto nýtt
